Velkomin á heyrumst.is!

Heyrumst.is! er vefur á vegum Barnaheilla, Save the Children, á Íslandi fyrir alla sem eru undir 18 ára aldri.

Ef þig vantar ráðgjöf eða stuðning sendu okkur póst í gegnum "Fáðu Ráðgjöf" og þú færð svar innan sjö daga frá ráðgjafa Barnaheilla. Þú getur valið um hvort spurning þín birtist á heimasíðunni eða bara ráðgjafinn sjái hana.
Við gætum alltaf fyllsta trúnaðar.

Eða er eitthvað sem þú vilt koma á framfæri varðandi réttindi þín eða lífið almennt, skólann eða hvað sem er?  Þá er "Tjáðu þig" vettvangur fyrir þig. Þar getur þú skrifað um allt milli himins og jarðar.
Við viljum heyra skoðanir þínar!




Tjáðu þig
Liggur þér eitthvað á hjarta? Er eitthvað sem þú vilt koma á framfæri varðandi réttindi þín eða lífið almennt, skólann eða hvað sem er þá er þetta vettvangur fyrir þig. Hér getur þú skrifað um allt milli himins og jarðar og mun það birtast á vefnum. Meira +
Fáðu ráðgjöf
Allir sem eru undir 18 ára aldri geta nýtt sér ráðgjöfina. Hér getur þú spurt okkur spurninga, leitað ráða eða skrifað um það sem þér liggur á hjarta. Þú ræður og getur skrifað um hvað sem er, við svörum öllum. Meira +
Hvert get ég leitað
Á þessari síðu ætlum við að hafa tenglasafn svo það hjálpi þér að leita upplýsinga um hin ýmsu málefni. Ef það er eitthvað sem þú ert að leita að en finnur ekki, skrifað okkur þá bréf í gegnum Fáðu ráðgjöf og við svörum þér. Ef þér líður illa og þarft að fá aðstoð hikaðu ekki við að hringja í hjálparsíma Rauða Krossins 1717. Hann er opinn allan sólarhringinn og það kostar ekkert fyrir þig að hringja í hann og fyllsta trúnaðar er gætt. Ef er um neyðartilvik að ræða hringdu þá í 112 og þar færðu aðstoð. Meira +
Hjálp núna!
Lífið getur stundum reynst okkur erfitt. Stundum líður okkur illa og vitum kannski ekki alltaf af hverju. Það er alltaf gott að geta leitað til einhvers til að tala um hlutina, þá líður manni oftast betur. Það getur verið einhver fullorðinn eða vinur sem maður þekki vel og treystir. Meira +

Innskráning

Veldu tungumál

Verndum börn gegn ofbeldi

ÞÍN RÉTTINDI

austurbaer